Notað kalt, allan ársins hring
Efnið er borið beint í holuna og þjappað á staðnum. Þegar frost er í jörðu mýkir fötuhitari efnið svo það vinnist eins og að sumri.
Kalt viðgerðarmalbik úr íslenskum steinefnum og lífolíu, framleitt með endurnýjanlegri orku á Eyrarbakka.
Stór hluti viðgerðarmalbiks á Íslandi er fluttur inn frá Evrópu og Bandaríkjunum. Miðbik framleiðir efnið innanlands.
Efnið er borið beint í holuna og þjappað á staðnum. Þegar frost er í jörðu mýkir fötuhitari efnið svo það vinnist eins og að sumri.
Steinefnin koma úr íslenskum námum og bikið er blandað lífolíu. Efnið er ekki flutt yfir hafið sem þungavara, sem sparar bæði kostnað og kolefni.
Upphitun og þurrkun steinefnisins gengur fyrir hitaveitu og rafmagni. Hefðbundin framleiðsla brennir dísilolíu í sama verk.
Frá því framleiðslulínan fór í gang hefur Miðbik unnið með Vegagerðinni, sveitarfélögum og innlendum birgjum, og er umboðsaðili fyrir Adfors á Íslandi.
Miðbik stofnað til að hanna og þróa framleiðsluvél fyrir viðgerðarmalbik.
Framleiðslulína tekin í notkun í höfuðstöðvum félagsins á Eyrarbakka.
Aukin ending slitlags þegar glertrefjamottur eru lagðar á milli laga.
Það sem verktakar, sveitarfélög og húsfélög spyrja okkur oftast að.
Í holuskemmdir í malbiki og bundnu slitlagi, allan ársins hring. Efnið er hugsað til viðgerða á stökum skemmdum, ekki í heilar yfirlagnir.
Við sendum verð og afhendingartíma, hvort sem um er að ræða eina fötu eða heilt bretti.
Fá tilboð